UPS Express ehf.
UPS á Íslandi
Express ehf. er umboðsaðili United Parcel Service á Íslandi. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim.
Í samvinnu við UPS býður Express ehf. hraðsendingaþjónustu inn og út úr landinu eins og best gerist á Íslandi. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu og er nú orðið leiðandi fyrirtæki á þeim markaði. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.
Í gegnum öflugt samskiptanet UPS er auðvelt að sjá hvaða sendingar eru á leið til landsins eða hvar þær eru staðsettar á leið til þín og auðvelt er að rekja sendinguna frá upprunalandi til ákvörðunarstaðar
UPS er elsta hraðsendingafyrirtæki í heiminum, stofnað í Bandaríkjunum árið 1907 og státar af meiri reynslu en nokkurt annað hraðsendingafyrirtæki. Í upphafi starfaði það aðeins innan Bandaríkjanna en færði fljótlega út þjónustusviðið og sinnir nú öllum hlutum heimsins. UPS er í dag áttunda stærsta flugfélag í heimi með 282 flugvélar á sínum snærum.
Hjá UPS starfa rúmlega 427.700 starfsmenn um heim allan, sem leggjast á eitt um að veita þér hraða og góða þjónustu. Fyrirtækinu hefur hlotnast fjöldinn allur af viðurkenningum fyrir þá góðu þjónustu sem það veitir og hefur í 15 skipti í röð verið valið ,,Americas best transportation company'' samkvæmt tímaritinu FORTUNE.
Bílstjóri UPS
BÍLSTJÓRAR ÓSKARS TIL STARFA
ATH Staðsetning: Keflavíkurflugvöllur
- Meðal verkefna bílstjóra eru útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini.
Almennar Hæfniskröfur:
- Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir.
- Geta til að koma máli sínu á framfæri í töluðu máli.
- Hæfni og vilji til að gera betur í dag en í gær
- Geta til að vinna vel í hóp og undir pressu
- Sveigjanleiki
Aldurstakmark er 18 ár. Vinsamlega sendið umsókn í gegnum heimasíðu www.express.is
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Fálkavöllur 7, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)JákvæðniMannleg samskiptiÚtkeyrslaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Bílstjóri/lestunarmaður
Vaðvík
Game Master
CCP Games
SA Lyfjaskömmtun - sumarstarf
Lyf og heilsa
Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip
Afgreiðslufulltrúi / Customer service
Happy Campers
Lyfja Blönduósi - Forstöðumaður útibús, Framtíðarstarf
Lyfja
Starfsmaður verslun Hobby & Sport
Hobby & Sport ehf
Liðsauki í vöruhús
Ískraft
Afgreiðsla í bakaríi
Nýja Kökuhúsið
Starfsmaður í verslun á höfuðborgarsvæði
Stilling
Sölumaður
Góa-Linda sælgætisgerð
Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjavík
VÍS