Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Akademískur starfsmaður við lagadeild

Háskólinn á Bifröst leitar að virkum akademískum starfsmanni í fullt starf við lagadeild háskólans. Við leitum að einstaklingi með metnað og áhuga á að taka virkan þátt í þróun kennslu og rannsókna við deildina. Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar í kennslu og er leiðandi í þróun stafræns fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Háskólinn á Bifröst er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Hvanneyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Kennsla á fræðasviðinu

·         Leiðbeining í lokaritgerðum

·         Rannsóknir, fræðastörf á fræðasviðinu og umsóknir í rannsóknarsjóði

·         Þátttaka í stefnumótun og stjórnun

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Framhaldsmenntun á fræðasviðinu, doktorspróf er æskilegt

·         Kennslureynsla á háskólastigi

·         Rannsóknareynsla

·         Reynsla af uppbyggingu og mótun námskeiða er kostur

·         Reynsla af stjórnun á háskólastigi er kostur

·         Góð reynsla og tengsl innan atvinnulífs

·         Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund

·         Leiðtoga- og skipulagsfærni

·         Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti

Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
Umsóknarfrestur12. maí 2024
Staðsetning
Háskólinn á Bifröst, Borgartúni 18
Háskólinn á Bifröst, 311 Borgarnesi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar